17.02.1938
Neðri deild: 2. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 16 í B-deild Alþingistíðinda. (14)

Kosning fastanefnda

Forseti (JörB):

Þá vil ég geta þess, að mér hefir borizt tilkynning um það frá hv. þm. Barð., að hann muni ekki geta mætt á þingfundum nú fyrst um sinn, sakir lasleika.

Jafnframt hefir komið fram ósk um það af hálfu Framsfl., að hann mætti setja menn til að gegna nefndastörfum fyrir hv. þm. Barð., meðan hann er fjarverandi, og er óskað, að hv. 1. þm. Rang. komi í hans stað í allshn., en hv. þm. V.- Húnv. í sjútvn.

Vil ég vænta þess, að hv. þd. fallist á þessa ósk.