06.05.1938
Neðri deild: 66. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1070 í B-deild Alþingistíðinda. (1538)
47. mál, laun embætissmanna
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Það kemur fram dálitið ósamræmi í því, að hv. flm. skuli lita öðruvísi á málið en hv. frsm. fjhn.
Ég lít svo á, að samþ. ætti þetta með því fororði, að réttur skilningur sé, að þetta skuli eiga við þau embætti, sem þegar eru veitt. Held ég því, að það sé rétt, að það komi fram frá mér þegar frv. verður samþ., að ég liti svo á, að með því sé gefin heimild til að greiða þessa uppbót til þeirra, sem sitja í embættum. Eins og ég sagði áðan, skal ég svo ekki tefja framgang frv.