10.05.1938
Neðri deild: 70. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1124 í B-deild Alþingistíðinda. (1656)

119. mál, lántaka fyrir ríkissjóð

Einar Olgeirsson:

Ég vil segja út af því, sem hæstv. fjmrh. sagði, að náttúrlega eftir þessar yfirlýsingar get ég ekki tekið brtt. aftur, en geng hinsvegar út frá því, að hún verði felld. Og munum við að sjálfsögðu sitja hjá við atkvgr.