09.05.1938
Efri deild: 69. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1144 í B-deild Alþingistíðinda. (1694)
102. mál, skattgreiðsla útgerðarfyrirtækja botnvörpuskipa
*Brynjólfur Bjarnason:
Við fyrri umr. um þetta mál hefir verið komið nógsamlega inn á, hvað mikið hneyksli þetta mál allt er í raun og veru. svo að ég ætla ekki að ræða um það almennt nú. Þó hefir n. tekið ofurlítið tillit til þeirrar gagnrýni, sem fram hefir komið, þar sem hún leggur þó til að breyta 2. gr. þannig, að í stað þess, að bæjarfélag sé skyldugt til að undanþiggja þessi fyrirtæki útsvari, verði það ekki nema heimild. Þær ástæður, sem frsm. n. færði fyrir sínu máli, voru ástandið í einum kaupstað landsins, Patreksfirði, þar sem er fyrirtæki, sem ber mikinn hluta af útsvörum hreppsins og jafnframt útgerðinni rekur aðra atvinnu, t. d. verzlun. Nú vil ég benda hv. þm. á, að það er þannig ástatt með fleiri fyrirtæki en þetta á Patreksfirði, að þau reka jafnframt útgerðinni aðra atvinnu, og hafa tekjur af því, og eru jafnvel, þó að útgerðin gangi skrykkjótt, mjög vel stæð. Þess vegna er dálítið skrítið, samkv. rökum hv. þm., að erfitt sé að greina þetta sundur, að bera hér fram frv. í þessu formi, því ef þetta gildir um útsvör, þá gildir það vitaskuld um tekjuskatt líka. Hvaða ástæða er til þess að undanþiggja á þann hátt, sem gert er í 1. gr., svona fyrirtæki svo að segja öllum tekjuskatti, þannig að þeim er heimilt að draga frá skattskyldum tekjum 90% af þeirri fjárhæð, sem þau leggja í varasjóð af árstekjum sínum? Ég held, að þetta sýni bezt, hvílík firra frv. er í heild.
Það er líka annað, sem fram hefir komið í þessu máli, sem sýnir þetta ekki síður, og það eru þær brtt., sem bornar hafa verið fram af hv. þm. Vestm., þar sem hann leggur til, að ákvæði 1. gr. um skattfrelsið nái ekki aðeins til útgerðarfyrirtækja íslenzkra botnvörpuskipa, heldur allra annara útgerðarfyrirtækja landsmanna. Má segja um þetta, að „fyrst þarf ormurinn út úr skel og afskræmi tímans að sjást svo vel, að ranghverfan öll snúi út“.
Það er að vísu alveg rétt hjá hv. þm. Vestm., að það er eins mikil ástæða til að undanþiggja ýms önnur fyrirtæki skatti og félög íslenzkra botnvörpuskipaeigenda. Með þessum brtt. er sem sé farið fram á, að allir atvinnurekendur í undirstöðuatvinnuvegi landsmanna séu skattfrjálsir, m. ö. o. allir skattar og skyldur þessara atvinnurekenda lendi á hinu breiða baki almennings.