10.05.1938
Neðri deild: 71. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1237 í B-deild Alþingistíðinda. (1839)
138. mál, mæðiveiki
*Bergur Jónsson:
Ég vil benda hv. þm. Mýr. á, þegar hann er að bera fyrir sig umsögn framkvæmdastjóra um athugun á fé vestan Þorskafjarðar og austan, að það kemur ekkert málinu við, því að einmitt eftir till. sjálfrar n. kemur belti þar á milli. Það er því bara ósanngirni af n. að vera á móti brtt. minni. Þeir, sem bjuggu vestan Þorskafjarðar, höfðu engan undirbúning að línu milli Kollafjarðar og Ísafjarðar, því að þeir treystu því, að sú lína mundi koma. Þeir höfðu því engan viðbúnað til þess að taka á sig þann kostnað. Hér er um svo litið fé að ræða í samanburði við þau hundruð þúsunda, sem hvort sem er þarf að leggja fram, að ekki er horfandi í það.
Hv. frsm. spurði, hvort ég gæti ekki verið það sanngjarn, að í stað þess, að í brtt. mínni stendur: „milli Steingrímsfjarðar og Berufjarðar“, kæmi: milli Steingrímsfjarðar og Þorskafjarðar eða Berufjarðar. En ég skil ekki þessa ákefð í að ofurselja Reykjanes veikinni. Það hefir verið sótt mjög eftir því af Geirdælingum að fá línu til þess að verja sig, en því hefir verið neitað, og ég hefi ekki viljað bera upp þá till., því að ég veit, að hún mundi falla, en að bæta Reykjanesi ofan á, er alger fásinna. Það er ákveðið af Reyknesingum, að þeir ætla að girða sig inni á eigin kostnað, ef brtt. mín verður felld. En af því að hér er um svo tiltölulega litinn kostnað að ræða, finnst mér sanngirnismál að samþ. brtt.