11.05.1938
Efri deild: 75. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1250 í B-deild Alþingistíðinda. (1865)

138. mál, mæðiveiki

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Brtt. sú, er hér liggur fyrir. er fram komin vegna þess, að eins og hv. þm. sjá, er fé það, sem ætlað er til vegagerða samkv. frv., bundið við hreppa- og sýsluvegi, en það er ekki útilokað, að hlutaðeigendur vildu einnig verja þessu fé til annara vega, t. d. þjóðvega. og tel ég því miklu réttara, að þetta sé óbundið, og hygg ég, að þeir, sem hafa fjallað um málið, geli fallizt á það.