22.04.1938
Neðri deild: 51. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1265 í B-deild Alþingistíðinda. (1892)

34. mál, atvinna við siglingar

Frsm. meiri hl. (Bergur Jónsson):

Út af því, sem hv. 5. landsk. var að tala um, að það vantaði rökstuðning í þessu máli, vil ég benda honum á, að það eru komnar fram margar brtt. við frv.. en þær hafa verið teknar aftur, og því er eðlilegt, að umr. séu geymdar til 3. umr., enda er því lýst yfir, að fram komi rökst. dagskrá um að vísa málinu til stj. Ég held því, að allir geti verið ánægðir með að láta umr. bíða til 3. umr.