07.04.1938
Efri deild: 43. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1339 í B-deild Alþingistíðinda. (1980)

28. mál, rekstrarlánafélög

*Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég sé, að hér eru helzti fáir mættir til að ræða þetta mál, og aðalflm., þess er ekki viðstaddur. Ég hefi sjálfur ekki miklu að bæta við það, sem ég sagði við 2. umr. þessa máls, en vildi aðeins leggja hér fram rökstudda dagskrá, sem ég ætla að lesa hér upp, með leyfi hæstv. forseta:

Þar sem engar hömlur eru lagðar á útvegsmenn samkv. gildandi l., um að mynda hagsmunasamtök sín á milli, m. a. um stofnun rekstrarlánafélaga, þá lítur deildin svo á, að löggjöf um þetta efni sé með öllu ónauðsynleg, og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.