18.02.1938
Neðri deild: 3. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 306 í B-deild Alþingistíðinda. (204)

4. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta frv. er shlj. þeim l., sem sett voru á síðasta þingi um bráðabirgðabreyt. nokkurra l., eins og segir í aths. við frv. Ákvæðin í frv. eru hv. þdm. svo kunn, að ekki er ástæða til að rekja þau. Ég legg svo til, að málinu verði vísað til fjhn., að lokinni þessari umr.