11.05.1938
Neðri deild: 74. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1422 í B-deild Alþingistíðinda. (2087)
137. mál, hitaveita í Reykjavík
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Það er alveg rétt hjá þessum hv. þm., sem hann sagði um Akuryrarlánið, og ég ætla ekki að fara langt út í að ræða það hér. Ég hygg þó, að það lán hafi verið á ferðinni á eftir hitaveituláninu. í hvaða sambandi, sem það kann að standa hvað við annað að öðru leyti. Þó er ég ekki viss um það.