12.05.1938
Efri deild: 77. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1430 í B-deild Alþingistíðinda. (2108)
137. mál, hitaveita í Reykjavík
*Jónas Jónsson:
Ég hefi ekkert að gera með samúð frá þessum manni. Hann hefir hjálpað til á kosningaskrifstofu Sjálfstfl. einu sinni og kosningaskrifstofu Framsfl. í annað skipti og hjá Alþfl. í þriðja skiptið. Ég vonast eftir, að hann hafi nú gert góða verzlun. Ég held mig langi ekki til að verzla við hann, en álít það eitt af erfiðleikum Alþfl. að hafa fengið þetta óhappaspil að síðustu á höndina.