05.04.1938
Neðri deild: 41. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1433 í B-deild Alþingistíðinda. (2122)

Afgreiðsla þingmála

Bjarni Bjarnason:

Ég vildi leyfa mér að gera fyrirspurn til landbn. um frv., sem vísað var til hennar um notkun og meðferð jarðhita. Þetta er þriðja þingið, sem málið er borið fram á, og því hefir alltaf verið vísað til sömu n., og á 2 síðustu þingum hefir n. — ég vil segja — tekizt að svæfa málið. Nú vil ég ekki lengur við það una, að n. láti ekki til sín heyra, og vil beina því til hæstv. forseta, að hann hlutist til um, að n. skili áliti um þetta mál.