05.04.1938
Neðri deild: 41. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1434 í B-deild Alþingistíðinda. (2126)

Afgreiðsla þingmála

Sveinbjörn Högnason:

Út af fyrirspurn hv. þm. Borgf. um frv. hans um breyt. á vegalögunum vil ég gefa þess fyrir hönd samgmn., að hún — eftir að brtt. voru komnar fram við frv. — sendi það til umsagnar vegamálastjóra. Umsögn hans er enn ekki komin, en hinsvegar fel ég víst, að ef hún kemur ekki, þá verði kallað eftir henni og málið muni verða tekið fyrir í næstu viku í n.