12.05.1938
Sameinað þing: 31. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1437 í B-deild Alþingistíðinda. (2133)

Afgreiðsla þingmála

Forseti (HG):

Út af ummælum hv. þm. A.-Húnv. og hv. þm. Borgf. um, að þeir hafi verið órétti beittir og það sé með öllu óeðlilegt, að till. þeirra skuli ekki hafa fengið afgreiðslu, þá vil ég taka það fram, að mér er kunnugt um, að ef þessum málum hefði verið hreyft, þá myndu hafa komið fram margar till. um sama efni frá þm. einstakra héraða um að tryggja matjessíldarsöltun þar. En eins og störfum þingsins var komið, þá var bersýnilegt, að ekki væri unnt að ljúka þessum málum. Þetta hafði ég í gær tilkynnt hv. þm. Borgf. og hann þá sætt sig við það.

Það verða svo ekki leyfðar nema örstuttar aths. um þetta.