31.03.1938
Sameinað þing: 12. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1468 í B-deild Alþingistíðinda. (2194)

Ráðherraskipti

*Forsrh. (Hermann Jónasson):

Í ræðu hv. þm. G.- K. komu ekki fram nein atriði, sem ég þarf að svara, enda minntist hann á það sjálfur, að hann myndi láta þessi atriði biða þangað til síðar, og lýsti því yfir, að hann eða hans flokkur á Alþingi myndi bera fram vantraust. Þess vegna skilst mér, að rétt sé að láta frekari umr. um þetta bíða þangað til þar að kemur, og mun ég því ekki lengja umr. á þessum fundi.