12.05.1938
Sameinað þing: 31. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1472 í B-deild Alþingistíðinda. (2211)

Verðlaunanefnd Gjafar Jóns Sigurðssonar

Forseti (HG):

Mér hefir borizt bréf frá Barða Guðmundssyni, sem sæti hefir átt í nefndinni af hálfu Alþfl., þar sem hann óskar eftir að vera leystur frá starfinu í n., og verður orðið við þeim almennum tilmælum. Ég vænti, að menn geti fallizt á, að Alþfl. geri uppástungu um mann í hans stað í n. Alþfl. hefir stungið upp á Þórði Eyjólfssyni hæstaréttardómara.

Þar sem ekki komu fram fleiri uppástungur, lýsti forseti yfir, að rétt væri kjörinn til þess að taka sæti í nefndinni:

Þórður Eyjólfsson hæstaréttardómari.