12.05.1938
Sameinað þing: 32. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 1476 í B-deild Alþingistíðinda. (2222)

Þinglausnir

forsrh. (Hermann Jónasson):

Það eru nú liðin 1008 ár síðan Alþingi Íslendinga var stofnað, og þetta er 53. löggjafarþingið síðan Alþingi var endurreist.

Ég leyfi mér í umboði konungs og í hans nafni að segja Alþingi slitið.

Ég vil biðja alþingismenn að minnast ættjarðar vorrar, Íslands, og svo konungs vors með því að rísa úr sætum sínum.

[Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.]

Var síðan af þingi gengið.