21.03.1938
Neðri deild: 30. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 3 í C-deild Alþingistíðinda. (2228)

37. mál, dragnótaveiði í landhelgi

Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Þetta frv. á þskj. 40 hefir verið til meðferðar í sjútvn. Eins og nál. á þskj. 107 ber með sér, hafa allir nm. skrifað undir það, en þó hafa tveir þeirra, hv. þm. N.-Ísf. og hv. þm. Ak., áskilið sér að hafa óbundnar hendur í málinu. Hinir þrír mæla með, að frv. verði samþ. óbreytt.