25.03.1938
Neðri deild: 34. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í C-deild Alþingistíðinda. (2251)

6. mál, tekjuskattur og eignarskattur

*Sigurður Kristjánsson:

Það var ekki meining mín að fara að ræða málið að þessu sinni, þó hv. 1. þm. Rang. hafi skilið það svo. Ég vil ekki láta það ómótmælt, að ég hafi ekki viljað ganga inn á, að úfvegsmenn tækju þetta á sig. Það hefir alls ekki legið fyrir, og því ekki dregið úr lausn málsins. Ég vil því senda þetta aftur til hv. þm.