25.03.1938
Neðri deild: 34. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 10 í C-deild Alþingistíðinda. (2253)

6. mál, tekjuskattur og eignarskattur

*Sigurður Kristjánsson:

Ég svara aðeins fyrir það, sem snýr að mér, en mér kemur ekkert við nagg milli þessa hv. þm. og annara, sem ekki snertir þetta mál. Ég talaði um, að það hefði aldrei legið fyrir mér að ganga inn á það, að útvegsmenn tækju á sig að borga þetta. En það er bersýnilegt, að það hefir þvælzt fyrir n. að gera skil í þessu máli, annaðhvort af viljaleysi eða skilningsleysi.