12.04.1938
Neðri deild: 47. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í C-deild Alþingistíðinda. (2257)

6. mál, tekjuskattur og eignarskattur

*Sigurður Kristjánsson:

Ég er tel minnugur þess, að hæstv. núv. atvmrh. var með skæting, þegar ég spurðist fyrir um mál þetta síðast. Það var því óþarfi fyrir hann að vera að endurtaka hann nú. Annars vil ég minna þennan hæstv. ráðh. á það, að sæti það, sem hann situr í, þolir vart slíka framkomu sem þessa. Hæstv. ráðh. væri því sæmra að sitja rólegur í sæti sínu en vera að sletta sér fram í mál, sem honum koma ekkert við, eins og þetta. Ég mun eiga við hæstv. forseta og fjhn. um málið, en ekki við einstaklinga eða slettirekur.