11.04.1938
Neðri deild: 46. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 144 í C-deild Alþingistíðinda. (2404)
39. mál, efnahagsreikningar
Ísleifur Högnason:
Ég vildi aðeins leiðrétta dálítinn misskilning, sem fram kom hjá hv. síðasta ræðumanni. Ég átti vitanlega við það, að almenningur gæti haft eftirlit með rekstri bankanna, en ekki fyrirtækjanna. Ég tók það fram í minni fyrstu ræðu, að það væri aðhaldið gagnvart bönkunum, sem hefði mesta þýðingu, en ekki gagnvart fyrirtækjunum sjálfum.