26.04.1938
Neðri deild: 54. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 145 í C-deild Alþingistíðinda. (2406)

39. mál, efnahagsreikningar

Helgi Jónasson:

Ég á hér brtt. á þskj. 325, sem gengur í þá átt að breyta ákvæðinu um það, hvenær menn skuli vera skyldir að birta efnahagsreikninga, þannig, að í staðinn fyrir 100 þús. komi 150 þús. Þetta ákvæði hefir verið andstæðingum frv. mestur þyrnir í augum. En með þessu lækkar tala þeirra, sem skyldir verða að birta efnahagsreikninga, um rúmlega helming. samkv. upplýsingum, sem ég hefi fengið. — Ég vil vænta þess, að þessi till. fái góðar undirtektir í hv. d. og verði samþ.