05.03.1938
Neðri deild: 15. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 159 í C-deild Alþingistíðinda. (2420)

42. mál, héraðsþing

Flm. (Vilmundur Jónsson):

Ég tel ekki þörf á að gera ýtarlega grein fyrir þessu frv. í framsögu. Ég hefi lagt vinnu í að semja um það allýtarlega grg., sem ber glöggt með sér, hver tilgangur frv. er, og hefi ég engu þar við að bæta. Ég vil aðeins mælast til þess, að frv. verði, að lokinni þessari umr., vísað til allshn., sem ég geri ráð fyrir, að taki frv. til nánari athugunar, því að mér dettur ekki í hug, að ekki megi bæta um form þess og e. t. v. að einhverju leyti um efnisákvæði þess.