28.03.1938
Neðri deild: 35. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í C-deild Alþingistíðinda. (2458)

71. mál, lóðarnot í Reykjavík

*Frsm. (Gísli Guðmundsson):

Mér sýnist nokkuð vera farið að draga saman með mönnum í þessu máli, og er útlit fyrir. að ágreiningurinn verði kannske ekki eins mikill og á horfðist. En ég vil benda á, að frv. er nú aðeins til 2. umr. í fyrri d. og á eftir að fara gegnum eina umr. enn í þessari hv. d. og svo þrjár umr. í hv. Ed. Mér sýnist því. ef byggingarn. vill taka málið til endurnýjaðrar afhugunar, að þá sé rúmur tími til þess, áður en það yrði afgr. sem l. frá Alþingi. Sé ég því ekki neitt á móti því að vísa frv. til 3. umr. að þessu sinni.