28.03.1938
Neðri deild: 35. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 185 í C-deild Alþingistíðinda. (2464)

71. mál, lóðarnot í Reykjavík

Forseti (JörB):

Málið er nú til 2. umr., svo að þó að það væri, að þessari lokinni, látið fara til 3. umr., væri þessi hv. d. enn ekki búin að sleppa því úr sinni hendi. Mér fyndist auk þess æskilegt að fá atkvgr. um brtt. þá, sem hér liggur fyrir, og væri málið þar með komið á hinn nýja grundvöll. Tel ég því engu spillt með því að láta málið nú ganga til 3. umr.