12.04.1938
Efri deild: 47. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 335 í B-deild Alþingistíðinda. (249)

3. mál, bráðabirgðatekjuöflun ríkissjóðs og jöfnunarsjóðs bæjar- og sveitarfélaga

Forseti (EÁrna):

Þar sem lítur út fyrir, að nú sé að verða lokið þeim deildarfundum, sem hægt verður að halda fyrir páska, hefir mér dottið í hug að stinga upp á, hvort ekki væri hægt að láta falla niður frekari umr. við þessa umr. málsins og brtt. þær, sem fyrir liggja, væru teknar aftur til 3. umr.