12.04.1938
Efri deild: 47. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 335 í B-deild Alþingistíðinda. (252)
3. mál, bráðabirgðatekjuöflun ríkissjóðs og jöfnunarsjóðs bæjar- og sveitarfélaga
Jóhann Jósefsson:
Ég fyrir mitt leyti hefi ekkert á móti því að geyma til 3. umr. það, sem ég hefi að segja um þetta mál. Ég kvaddi mér hljóðs áðan, en ég var búinn að því áður en tilmæli komu fram um að fresta umr. um málið. Ef það er ósk hæstv. forseta að fresta umr. til 3. umr., þá er ég þar ekki maður í milli og skal ekki neitt halda því fram að fá að tala í þessu máli nú, ekki síður fyrir það, að hv. frsm. hefir lýst því yfir, að þær brtt., sem fram eru komnar, verði athugaðar fyrir 3. umr. Allt þetta virðist mér frekar styðja að því, að sátt og samkomulag geti orðið um að geyma frekari umr. til þess tíma.