11.04.1938
Neðri deild: 46. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 239 í C-deild Alþingistíðinda. (2566)
97. mál, fiskimálanefnd
*Flm. (Sigurður Kristjánsson):
Samkv. l. um fiskimálan. ber að styrkja félög manna, verkamanna, sjómanna og annara, til að kaupa eða láta smiða og gera út nýtízku togara. Svo er fyrir mælt, að styrkurinn skuli nema 20% af kaupverði hvers togara, sem keyptur verður. Styrkur þessi er bundinn því skilyrði, að félög þau, sem kunna að verða stofnuð eða eru til og vilja hagnýta sér þennan styrk, eiga að leggja fram 15–20% af kostnaði við kaup á þessum útgerðartækjum. Fiskimálasjóði, sem leggur fram styrk þennan, eru tryggðar tekjur, sem nema fullri 1/2 millj. kr. á ári; þar af leggur ríkissjóður fram 400 þús. kr. og svo fær sjóðurinn 1/2% af andvirði útflutts fiskjar og fiskafurða, annara en síldarafurða. Þetta fé hefir ekkert verið notað, og mér er sagt, að ástæðan sé sú, að engin félög hafi komið fram, sem sótt hafi um þennan styrk, og mun ástæða þess vera fyrst og fremst sú, að engir hafi getað eða viljað leggja fram hið tilskilda fjárframlag, 15–20%, gegn þessum 25% styrk. Ég tel ekki rétt, þar sem fé þetta er tekið og lagt í sjóð, annað en að það komi sjávarúfveginum í heild að gagni á sem svipaðastan hátt og til hefir verið ætlazt, sem sé með því að auka útgerðartækin. Hver sem skipin væru, miðar það að því að auka framleiðsluna og atvinnumöguleikana bæði fyrir sjómenn og þá, sem fiskvinnu stunda í landi. Mér er kunnugt um, að menn eru fúsir til að leggja fram þetta tilskilda fé í þeim tilgangi að láta byggja vélbáta, og fyrst féð hefir ekki verið notað enn til togarakaupa, þá finnst mér sjálfsagt að láta vélbáta koma undir sömu skilyrði og sjá þá, hvort menn yrðu ekki til þess hér eða í öðrum útvegsstöðvum landsins að leggja fram fé í þeim tilgangi að gera út mótorskip, og þannig verði fullnægt því, sem menn verða að álíta, að hafi verið aðaltilgangur með stofnun þessa sjóðs, að auka framleiðslutækin og magn útflutningsvöru og bæta atvinnuskilyrðin í landinu.
Ég ætla ekki að eyða að þessu fleiri orðum. Málið er mjög einfalt og þarf ekki frekari skýringa við, en ég vil fara fram á, að málinu verði tekið vinsamlega og að þessari umr. lokinni verði því vísað til 2. umr. og sjútvn.