21.02.1938
Efri deild: 5. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í C-deild Alþingistíðinda. (2654)

9. mál, framfærslulög

Flm. (Brynjólfur Bjarnason):

Herra forseti! Frv. það, sem hér liggur fyrir til umr., var flutt á síðasta þingi, og hefir því í engu verið breytt frá því, sem það var þá. Ég gerði þá þegar grein fyrir aðalatriðum þess, svo að ég tel óþarft að fara nú að endurtaka það, sem ég þegar hefi sagt um nauðsyn málsins. Frv. var þá vísað til nefndar, en kom aldrei aftur frá n., sem fékk það til meðferðar. Ég lyfi mér því að mega vænta þess, að svo fremi sem hv. deild fellst á að vísa því til n. nú, þá fallist hún og á að afgreiða það frá nefnd.