28.04.1938
Efri deild: 56. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 275 í C-deild Alþingistíðinda. (2662)

21. mál, ríkisframfærsla sjúkra manna og örkumla

Brynjólfur Bjarnason:

Ég vildi aðeins benda n. á, að þetta mál, sem hér um ræðir, er mikið áhugamál fjölda manna víðsvegar um land og Alþ. hafa borizt frá þó nokkrum stöðum áskoranir um að samþ. þetta frv., sem hér liggur, eða eitthvað, sem gangi í sömu átt. Ég tel það því mjög varhugavert að láta þetta mál liggja þannig, sem er rætt svo mikið um allt land og er svo mikið áhugamál allra hreppsnefnda í fátækum hreppum úti um land, án þess að fá á því viðunandi lausn.