19.04.1938
Efri deild: 49. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 298 í C-deild Alþingistíðinda. (2700)
85. mál, skrifstofufé sýslumanna og bæjarfógeta o. fl.
*Frsm. (Ingvar Pálmason):
Það er náttúrlega rétt, að hv. 1. þm. Reykv. var ekki mættur á fundi allshn. í morgun, en þetta mál er búið að vera nokkuð lengi fyrir n., og ekki að ástæðulausu, því að það er talsvert vandasamt og viðkvæmt mál. Á fundinum í morgun voru mættir 4 nm., og tóku þeir þá fullnaðarafstöðu til málsins. Eftir því sem ég veit bezt, þá er þessi ósk hv. 1. þm. Reykv. fram komin vegna þess, að hann hefir sennilega í huga, að koma með brtt., og ég hefði talið, að sú brtt. gæti komizt að skriflega við þessa umr., því ég held, að til n. hafi sú brtt. ekki neitt erindi. Ég hygg, að hv. 1. þm. Reykv. sé það kunnugt, að meiri hl. n. er mótfallinn fleiri breyt. á frv. Ég hygg, að hann hafi orðið þessa var. Ég hefði því heldur viljað mælast til þess, að málið fengi afgreiðslu í dag, því að það á eftir að fara til Nd., en málið er talsvert umfangsmikið og viðkvæmt.