19.04.1938
Efri deild: 49. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 299 í C-deild Alþingistíðinda. (2704)

85. mál, skrifstofufé sýslumanna og bæjarfógeta o. fl.

Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég hygg, að það hafi verið nokkurnveginn shlj. álit meiri hl. n. í morgun, að hún mundi ekki geta tekið á móti fleiri brtt. í þessu máli. Ég játa, að hv. 1. þm. Reykv. hafði ymprað á því, að hann mundi bera fram brtt. viðvíkjandi ákveðnu embætti, og eftir því sem mér hefir heyrzt, var meiri hl. n. mótfallinn að gera fleiri brtt. viðvíkjandi bæjarfógetaembættunum en þessa einu, sem gerð mun verða grein fyrir, þegar málið kemur til umr.