11.05.1938
Efri deild: 74. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í D-deild Alþingistíðinda. (2800)
134. mál, sýslumannabústaðir
*Magnús Jónsson:
Ég vildi aðeins mæla með þessari till., því ég er viss um, að það mun sýna sig, að það verður að ganga út á þá braut, meir en verið hefir, að ríkið reyni að koma upp bústöðum fyrir sína embættismenn. Þetta hefir að vísu verið gert nokkuð bæði fyrir presta- og læknastéttina. Hér er farið fram á, hvort ekki þyki tiltækilegt að koma upp húsum yfir valdsmenn ríkisins á hverjum stað. Ég er sammála hv. flm., að til þess beri hin mesta nauðsyn. Það er enginn vafi á því, að það er betra fyrir ríkið að eiga slíka bústaði og geta þannig á nokkurn hátt launað starfsmönnum sínum með því að láta þá hafa fría íbúð. Ég hygg, að einnig hér í Reykjavík verði stefnt að því, að ríkið smám saman eignist bústaði fyrir sem flesta af sínum starfsmönnum í þeim embættum, sem telja má föst. Ég hygg, að það sé ekki önnur leið betri fyrir ríkið til þess að verða við réttmætum óskum ýmsra starfsmanna sinna um, að létt verði undir með þeim.