11.05.1938
Efri deild: 74. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í D-deild Alþingistíðinda. (2805)
134. mál, sýslumannabústaðir
Þorsteinn Þorsteinsson:
Ég skal fara að óskum hæstv. forseta að fara ekki mjög út fyrir till. sjálfa, þó að annars væru ærnar sakir til þess. En leiðrétta verð ég örlítið hjá hæstv. forsrh. Hann segir, að það hafi áður verið venja eða regla að slá ekki upp embættum. Þetta er ekki rétt. Ég veit ekki um nema tvö embætti, sem ekki var slegið upp: í Stykkishólmi og Ísafirði. Ég veit, að Akureyri var slegið upp og eins Húnavatnssýslu. Ráðh. telur, að stjórnmálaskoðanir hafi ráðið þá. Ég veit bezt, að þegar mér var veitt Dalasýsla, var ég frekar stjórnarandstæðingur en hitt; illu heilli var ég þá frekast framsóknarmaður. Samt sem áður fékk ég embættið og þurfti engan leyfis að biðja að hafa skoðanir mínar. En nú virðist sem fimm starfsmönnum hafi verið veitt embætti, án þess að þeim hafi verið slegið upp. — Þess vegna er það ákaflega eðlilegt, sem hv. flm. (JJ) sagði, að sýslumannastéttinni hafi verið að hraka.