11.05.1938
Neðri deild: 74. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í D-deild Alþingistíðinda. (2825)

131. mál, ný læknishéröð

Eiríkur Einarsson:

Ég mótmæli því, að hér sé ekki um brýna nauðsyn að ræða í héraði hv. flm. þáltill. Ég veit, að þar liggja fyrir áskoranir og vilji fjölda manna, en nauðsynin getur verið brýn víðar, og á ekki að fara eftir því, hvort þm. eru fljótir eða seinir að sinna henni.