12.05.1938
Efri deild: 78. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í D-deild Alþingistíðinda. (2832)

140. mál, atvinnuskilyrði aldraðra sjómanna

*Flm. (Jónas Jónsson):

Ég held, að ég þurfi ekki að fjölyrða um till. Ég hefi skýrt greinilega, hvað fyrir mér vakir, í grg. Ég treysti Sjálfstfl. til að geta verið sammála Framsfl. um að láta rannsaka þetta með áhugamönnum. Vona ég, að þessi till. verði samþ. og verði valdir duglegir menn í þetta, svo það geti borið góðan árangur.