05.04.1938
Sameinað þing: 16. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í D-deild Alþingistíðinda. (2867)
91. mál, vantraust á ríkisstjórnina
Héðinn Valdimarsson:
Ég vildi taka það fram, að ég tala að sjálfsögðu sem alþýðuflokksmaður, en utan þingflokks Alþfl. Til þess að vera alþýðuflokksmaður þarf maður samkv. l. flokksins ekki annað en eitt eða tvennt eða þrennt, að vera meðlimur í einhverju félagi innan Alþýðusambands Íslands, — en það er ég, eins og kunnugt er, — að hafa undirskrifað yfirlýsingu um að tilheyra engum öðrum stjórnmálaflokki og að fylgja stefnuskrá flokksins.
Sú deila, sem er milli mín og meiri hl. flokksstj., hefir engin áhrif á þetta, öðruvísi en að flokksþingið úrskurðar þau deilumál. Hinsvegar hefir þingflokkur Alþfl. meinað mér að taka þátt í starfsemi sinni hér á Alþ., og get ég því ekki talizt í þingflokknum.
Samkv. l. Alþfl. er engin skylda fyrir þm. hans að vera innan vébanda flokksins; t. d. hefir utanflokksmaður verið í þingflokknum, og á ég þar við hv. þm. N.-Ísf., Vilmund Jónsson, sem hvorki hefir verið í neinu félagi innan flokksins né undirritað yfirlýsingu um að fylgja stefnuskrá hans. Það að vera í þingflokknum og að vera í flokknum er þess vegna ekki eitt og hið sama.
Ég vil því gera þá kröfu að fá að tala hér sem alþýðuflokksmaður f. h. skoðanabræðra minna í þeim flokki, en jafnframt utan þingflokks Alþfl., og vil skírskota til þess, er annar hv. þm. fékk að tala hér við útvarpsumr., og á ég þar við Magnús Torfason.