16.03.1938
Efri deild: 24. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 387 í B-deild Alþingistíðinda. (329)

68. mál, gerðardómur í togarakaupdeilu

Forseti (EÁrna):

Ég geri ráð fyrir, að hér eftir muni umr. einnig hljóta að snúast um frv., sem flutt er að tilhlutun hæstv. atvmrh. á þskj. 96, jafnt og um frv., sem fyrir liggur. Beiðni hv. 1. þm. Reykv. styðst við fullar ástæður, og mun ég veita nokkurt fundarhlé, að loknu svari hæstv. atvmrh.