16.03.1938
Efri deild: 24. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 401 í B-deild Alþingistíðinda. (334)
68. mál, gerðardómur í togarakaupdeilu
Forseti (EÁrna):
Ég tel æskilegt, að þessari 1. umr. gæti orðið lokið áður en matarhlé hefst, bæði af því, að nauðsynlegt er talið, að málinu verði yfirleitt hraðað sem mest, og eins af hinu, að mér hafa borizt óskir um, að fundur verði ekki settur aftur fyrr en kl. 10 í kvöld. Ég teldi því æskilegast, að afgreiðsla málsins gæti farið fram fyrir matarhlé, sem verður kl. 71/2, jafnvel líka að því er önnur mál snertir.