07.05.1938
Sameinað þing: 28. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 141 í B-deild Alþingistíðinda. (75)

1. mál, fjárlög 1939

Sigurður Kristjánsson:

Ég veit ekki, hvort hægt er að hafa hér formlegar umræður, þegar mættir eru um 14% af þm., og enginn þingsveinn nálægur, svo að maður verður að hlaupa sjálfur eftir því, sem mann vantar. Er þetta þingfundur eða ekki?

Ég vil spyrja hæstv. forseta, hve margir hv. þm. hafa fjarvistarleyfi, því að mér er kunnugt um, að þeir eru þotnir út úr bænum í bílum.