07.05.1938
Sameinað þing: 28. fundur, 53. löggjafarþing.
Sjá dálk 165 í B-deild Alþingistíðinda. (90)
1. mál, fjárlög 1939
*Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég vil aðeins upplýsa það út af því, sem hv. 2. landsk. sagði viðvíkjandi kartöflunum og möguleikum á því að útvega útsæði, að forstöðumaður grænmetisverzlunar ríkisins hefir upplýst það fyrir stj., og það hygg ég, að allir viti, sem nokkurn áhuga hafa fyrir þessu, því að það var auglýst í blöðunum, að nægilega snemma voru bæði búnaðarfélögin og eins þeir, sem verzlanir reka, beðnir um, að senda pantanir sínar í tíma, og þetta var gert, en svo pantaði grænmetisverzlunin miklu meira en það, sem þessir aðiljar báðu um (PZ: Sex sinnum meira.), en svo kom upp, að þessir aðiljar vildu fá miklu meira en þeir höfðu sjálfir pantað, að því er forstöðumaðurinn upplýsir, og 2 daga hefir vantað kartöflur, en ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að bæta úr því, þannig að það mun ekki vera ástæða til að ætla, að skortur verði á þessari vöru, eftir því sem forstöðumaðurinn hefir upplýst.