07.12.1939
Sameinað þing: 16. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 447 í B-deild Alþingistíðinda. (1001)

1. mál, fjárlög 1940

Forseti (PO):

Ég álít, að það verði hagkvæmust vinnubrögð með afgreiðslu fjárl., að fresta svokölluðum eldhúsumr. til 3. umr., og vildi ég bera það undir hv. Alþ., hvort það geti samþ., að sú tilhögun verði á því höfð.