22.04.1939
Neðri deild: 46. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í B-deild Alþingistíðinda. (102)

2. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. (Steingrímur Steinþórsson) :

Ég hefi ekki annað um þetta frv. að segja en að fjhn. mælir einróma með því, að frv. verði samþ. Frv. er búið að ganga gegnum hv. Ed. og náði samþykki þeirrar hv. d. óbreytt, og leggjum við til, að svo verði einnig hér í hv. d.