29.12.1939
Sameinað þing: 23. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 602 í B-deild Alþingistíðinda. (1083)
1. mál, fjárlög 1940
*Frsm. (Bjarni Bjarnason):
Það er aðeins í tilefni af því, sem hæstv. fjmrh. sagði áðan, að ég vildi geta þess, að það liggur ekki neitt fyrir um álit mitt á embætti. og störfum hv. 11. landsk. þm. Það finnast ekki í ræðu minni nein andmæli gegn hv. 11. landsk. sem embættismanni, og ekki heldur um ráðstafanir með skipun hans sem skrifstofustjóra.
Þó að hæstv. ráðh. héldi flokksfundi á morgun til þess að tryggja það sem verða má, að fjárlagaafgreiðslan verði í sæmilegu lagi, breytti það ekki miklu frá því, sem nú er. Til þess að svo megi verða, þarf að fella fyrst og fremst þær brtt., sem eru komnar í Ed., eða sem því nemur.