30.12.1939
Sameinað þing: 24. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 609 í B-deild Alþingistíðinda. (1110)

1. mál, fjárlög 1940

Viðskmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég er yfirleitt mótfallinn því, að lán séu tekin til vegagerða, en þar sem ég hinsvegar álít nauðsynlegt, að fjárveiting fáist til Siglufjarðarvegar og Raufarhafnarvegar umfram það, sem þegar er í frv., greiði ég atkv. með þessari heimild, en þó í því trausti, að ekki verði lagt í vegi þessa eftir henni yfir 50000 kr. samtals á næsta ári og komi þannig í stað samsvarandi fjárveitingar. Ég segi því já.