17.02.1939
Neðri deild: 3. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 610 í B-deild Alþingistíðinda. (1118)

4. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) :

Á síðasta Alþingi var samþ. frv. um að fresta framkvæmd nokkurra l. Mönnum eru ákvæði frv. kunn, og sé ég því eigi ástæðu til að rökræða það nánar að þessu sinni. Frv. er shlj. l., sem samþ. voru á síðasta Alþingi um sama efni.

Ég óska, að frv. verði vísað til fjhn. og 2. umr.