03.03.1939
Neðri deild: 12. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 613 í B-deild Alþingistíðinda. (1127)

4. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Einar Olgeirsson:

Ég vil beina því til hæstv. fjmrh., hvort hann vill taka undir það með okkur sósíalistum að fá tollana lækkaða. Ef svo er, vildi ég, að hann og flokksbræður hans hér í hv. d. reyndu með honum að gera það og að fá aðrar tekjuöflunarleiðir í staðinn.