02.01.1940
Neðri deild: 97. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 648 í B-deild Alþingistíðinda. (1183)

4. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga

Forseti (JörB) :

Út af ummælum hv. þm. A.Húnv. vil ég benda á, að þegar er byrjað á prentun umr.partsins fyrir fyrri hluta þessa þings, og er varla gerlegt að fresta prentun nokkurs hluta ræðnanna, en prenta nokkuð af þeim. Enda er brtt. þannig orðuð, að tvímælalaust er átt við það þing, sem haldið verður á árinu 1940.