06.11.1939
Neðri deild: 53. fundur, 54. löggjafarþing.
Sjá dálk 656 í B-deild Alþingistíðinda. (1200)

95. mál, gengisskráning og ráðstafanir í því sambandi

*Héðinn Valdimarsson:

Ég vil beina þeirri fyrirspurn til hv. þm. Ísaf., hvaðan honum komi fregn um það, að ég hafi átt í baráttu við verðlagsnefnd. Í fyrsta lagi er allt leynilegt, sem í þessari nefnd gerist, og nefndarmenn allir bundnir þagnarheiti, og í öðru lagi kannast ég alls ekki við að hafa átt þar í neinni baráttu.